 Kristján Orri var með sex mörk í leiknum
| | 29. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarTap gegn ÍR á lokamínútum leiksinsÞað var hörkuleikur þegar Akureyri og ÍR mættust í Austurberginu. Fyrri hálfleikur var gríðarlega spennandi, Akureyri hafði frumkvæðið í upphafi og náði nokkrum sinnum tveggja marka forystu, t.d. 4-6. ÍR jafnaði í 7-7 og eftir það munaði aldrei nema einu marki, hálfleiksstaðan 14-13 fyrir ÍR.
ÍR skoraði fyrsta mark seinni hálfleiks og náði þar með tveggja marka forskoti en í stöðunni 17-15 komu þrjú Akureyrarmök í röð og Akureyri þar með komið yfir 17-18. Jafnræðið hélt áfram en í stöðunni 20-20 komu þrjú ÍR mörk í röð og Akureyrarliðið hreinlega kom boltanum ekki framhjá Kristófer markverði ÍR. Þetta forskot tókst aldrei að vinna upp og með síðasta marki leiksins innsiglaði ÍR fjögurra marka sigur 27-23.
ÍR getur þakkað stórbrotinni markvörslu Kristófers sigurinn og Akureyri á sama hátt nagað sig í handarbökin fyrir að klúðra upplögðum færum til að snúa leiknum sér í hag. Í fyrri hálfleik voru Valþór, Kristján Orri og Þrándur atkvæðamestir í sóknarleiknum en í þeim seinni voru Bjarni og Kristján Orri iðnastir við markaskorunina. Í markinu átti Jovan flottan fyrri hálfleik en dalaði heldur í þeim seinni. Tomas Olavsson átti fína innkomu í markið í lokin en það dugði ekki til.
Mörk Akureyrar:Kristján Orri Jóhannsson 6, Valþór Guðrúnarson 6 (2 úr vítum), Bjarni Fritzson 4, Þrándur Gíslason 4, Sigþór Árni Heimisson 2 og Gunnar Malmquist 1. Jovan Kukobat varði 14 skot þar af eitt vítakast og Tomas Olavsson varði 3 skot.
Mörk ÍR: Björgvin Hólmgeirsson 9, Sturla Ásgeirsson 6, Arnar Birkir Hálfdánsson 5, Jón Heiðar Gunnarsson 4, Sigurjón Björnsson 2, Guðni Kristinsson 1. Í markinu varði Kristófer Fannar 21 skot. |