 Akureyri og FH hafa marga hildi háđ á undanförnum árum
| | 5. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarÚtileikur gegn FH á fimmtudaginnEftir smáhlé tekur alvaran viđ í Olís-deild karla á fimmtudaginn ţegar Akureyri mćtir Fimleikafélagi Hafnarfjarđar í Kaplakrikanum. FH liđiđ er klárlega eitt best mannađa liđ deildarinnar í ár og voru litlar breytingar á mannskapnum á milli ára. Ţeir krćktu í Valdimar Fannar Ţórsson fyrir tímabiliđ en Valdimar hefur leikiđ međ Val undanfarin ár en á góđum degi er Valdimar einn flinkasti spilari deildarinnar. Einnig endurheimtu ţeir hornamanninn Benedikt Reynir Kristinsson sem hefur veriđ međ Aftureldingu og Gróttu síđustu árin.
FH-ingar hafa veriđ í toppbaráttunni undanfarin tímabil, urđu Íslandsmeistarar 2011 eftir magnađ einvígi viđ Akureyri. Segja má ađ ţađ sé valinn mađur í hverri stöđu hjá FH, sóknarleiknum stýrir Ásbjörn Friđriksson af stakri snilld og skytturnar Ragnar Jóhannsson og Magnús Óli Magnússon hafa fariđ á kostum í vetur. Í hćgra horninu er oftast markamaskínan Einar Rafn Eiđsson á milli ţess sem hann tekur skyttustöđuna og í vinstra horninu hefur Benedikt Reynir Kristinsson veriđ drjúgur. Sigurđur Ágústsson er einnig erfiđur viđureignar á línunni. Ţegar litiđ er á helstu markaskorara FH liđsins ţá eru efstir á blađi Magnús Óli Magnússon međ 25 mörk, Einar Rafn Eiđsson međ 24, Ásbjörn Friđriksson, Benedikt Reynir Kristinsson og Ragnar Jóhannsson allir međ 17 mörk og Sigurđur Ágústsson međ 13 mörk.
Enn er ţó ótalinn markvörđurinn Daníel Freyr Andrésson sem hefur heilt yfir veriđ besti mađur liđsins í vetur og sömuleiđis á síđasta tímabili. Daníel ver sjaldan fćrri en 20 skot í leik og hefur veriđ ótrúlega stöđugur í sínum leik.
Akureyrarliđiđ endurheimtir Valţór Guđrúnarson í hópinn en Valţór tók út leikbann í síđustu umferđ. Einnig má búast viđ ţví ađ Heimir Örn Árnason reimi á sig skóna á ný og verđi til taks ađ bregđa sér inná. Heimi leiddist ekki ađ spila gegn FH í bikarnum í fyrravetur Leikurinn hefst klukkan 18:00 á fimmtudaginn í Kaplakrika og ástćđa til ađ óska eftir ađ allir stuđningsmenn á Stór-Hafnarfjarđarsvćđinu mćti og styđji viđ bakiđ á strákunum í ţessum leik. |