 HSÍ með nýjan styrktaraðila í bikarnum
| | 1. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri mætir Þrótti í fyrstu umferð bikarkeppninnarÍ hádeginu í dag var dregið í fyrstu umferð, eða 32-liða úrslit bikarkeppni karla. Í leiðinni var upplýst að bikarkeppnin í ár kallast Coca-Cola bikarinn. 28 karlalið voru í pottinum og dróst Akureyri Handboltafélag á móti 1. deildarliði Þróttar. Þróttur fær heimaleikinn þar sem þeir eru í neðri deild.
Annars drógust liðin saman sem hér segir: Stjarnan - Valur KR - ÍBV Hörður - Selfoss Þróttur - Akureyri Haukar 2 - Fylkir ÍBV 2 - Valur 2 Fjölnir 2 - Grótta Leiknir - HK ÍH - Árborg Afturelding - Fjölnir
Haukar, FH, Fram, ÍR, Víkingur og Völsungur sitja hjá í þessari umferð. Leikir karlaliðanna eiga að fara fram 17. og 18. nóvember.
Í Coca-Cola bikar kvenna fékk KA/Þór heimaleik gegn ÍBV en kvennaliðin drógust saman sem hér segir: Haukar - Selfoss FH - Afturelding KA/Þór - ÍBV HK - Grótta
Fylkir, Stjarnan, Fram og Valur sitja hjá í þessari fyrstu umferð. Kvennaleikirnir verða spilaðir 12. og 13. nóvember. |