 Til hamingju Jovan og Valli честитке

| | 26. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarJovan og Valþór í liði 9. umferðar hjá MorgunblaðinuMorgunblaðið birti í morgun val á úrvalsliði 9. umferðar Olís-deildar karla og að þessu sinni á Akureyri tvo fulltrúa í liðinu. Það eru markvörðurinn Jovan Kukobat og skyttan/leikstjórnandinn Valþór Guðrúnarson. Báðir áttu prýðisleik í sigurleiknum gegn ÍR og eru vel að þessu vali komnir.
Úrvalslið umferðarinnar að mati mbl er þannig skipað: Vinstra horn: Þórður Rafn Guðmundsson, Haukum (2) Vinstri skytta: Atli Karl Bachmann, HK Leikstjórnandi: Valþór Guðrúnarson, Akureyri (2) Hægri skytta: Elías Már Halldórsson, Haukum (2) Hægra horn: Leó Snær Pétursson, HK Línumaður: Ísak Rafnsson, FH (2) Markvörður: Jovan Kukobat, Akureyri Varnarmaður: Andri Berg Haraldsson, FH
Atli Karl Bachmann er jafnframt leikmaður umferðarinnar að mati mbl. Tölurnar innan sviga tákna hversu oft viðkomandi hefur verið í úrvalsliði mbl.
Við óskum þeim öllum til hamingju með tilnefningarnar. Jovan með magnaða vörslu gegn ÍR
 Valþór með eitt af sex mörkum sínum gegn ÍR í uppsiglingu
|