Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Við bjóðum Kópavogsliðið velkomið norður

27. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri fékk heimaleik gegn HK í Coca Cola-bikarnum

Nú rétt í þessu var dregið um hvaða lið mætast í sextán liða úrslitum Coca Cola-bikar karla. Akureyri og HK drógust saman og þar sem bæði lið eru í sömu deild fær Akureyri heimaleikinn þar sem liðið var dregið á undan.

Þetta er eina innbyrðisviðureign úrvalsdeildarliða að þessu sinni. Leikirnir eiga að fara fram 8. eða 9. desember og verður það annar leikur liðanna hér í Íþróttahöllinni á Akureyri á nokkrum dögum því þau mætast einmitt líka í Olís-deildinni þann 5. desember.

Hér má sjá allar viðureignirnar í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikarsins:
Akureyri - HK
Grótta - Selfoss
ÍH - FH
Víkingur - Haukar
Valur 2 - Valur
Haukar 2 - ÍBV
Afturelding - Fram
Völsungur - ÍR.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson