 Til hamingju Valli og Kristján

| | 27. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarValþór og Kristján Orri í úrvalsliði sport.is og handbolti.orgÍ gær sögðum við frá úrvalsliði Morgunblaðsins fyrir 9. umferð Olís-deildar karla. Nú hafa handbolti.org og sport.is birt sín úrvalslið umferðarinnar og má segja að sitt sýnist hverjum miðli. Kristján Orri Jóhannsson er valinn besti hægri hornamaðurinn hjá handbolti.org og Valþór Guðrúnarson er valinn besta vinstri skyttan hjá sport.is, til hamingju með það strákar.
Annars er úrvalslið handbolta.org þannig skipað, (talan innan sviga segir til um hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar hjá handbolta.org): Markvörður: Daníel Freyr Andrésson, FH (4) Línumaður: Garðar B. Sigurjónsson, Fram (4) Vinstri hornamaður: Þórður Rafn Guðmundsson, Haukum (1) Vinstri skytta: Magnús Óli Magnússon, FH (2) Miðjumaður: Guðni Már Kristinsson, ÍR (2) Hægri skytta: Atli Karl Bachmann, HK (1) Hægri hornamaður: Kristján Orri Jóhannsson, Akureyri (2)
Hjá sport.is lítur listinn aðeins öðruvísi út en þeirra úrvalslið er þannig skipað: Markmaður: Hlynur Morthens. Vinstri skytta: Valþór Guðrúnarsson Akureyri Hægri skytta: Atli Karl Bachmann HK Miðjuleikmaður: Guðni Már Kristinsson ÍR Vinstri horn: Þórður Rafn Guðmundsson Haukum Hægra horn: Leó Snær Pétursson HK Línumaður: Sigurður Ágústsson FH Valþór brýst í gegnum ÍR vörnina
 Kristján Orri var flottur í ÍR leiknum Eins og fyrr segir þá eru þessir þrír miðlar ekki alveg sammála og í raun er bara ein staða eins skipuð hjá öllum en það er Þórður Rafn Guðmundsson, Haukum sem allir völdu besta vinstri hornamanninn. |