Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Flott frammistaða hjá strákunum





10. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Þrír leikmenn Akureyrar í liði 11. umferðar hjá sport.is

Vefurinn sport.is hefur birt val sitt á úrvalsliði 11. umferðar Olís-deildarinnar. Það er greinilegt að frammistaða Akureyrarliðsins hefur vakið athygli því að liðið á þrjá leikmenn í úrvalsliðinu. Það eru Jovan Kukobat í markinu, Kristján Orri Jóhannsson sem hægri skytta og Sigþór Árni Heimisson sem leikstjórnandi. Auk þess er sérstaklega tekið fram að valið á vinstri skyttunni hafi staðið á milli Valþórs Guðrúnarsonar, Akureyri og Sveins Þorgeirssonar í Fram.
Frábær frammistaða hjá strákunum og við sendum þeim hamingjugóskir svo og öllum sem skipa liðið.

Úrvalslið 11. umferðar er þannig skipað að mati sport.is:
Markmaður: Jovan Kukobat Akureyri
Hægri skytta: Kristján Orri Jóhannsson Akureyri
Vinstri skytta: Sveinn Þorgeirsson Fram
Leikstjórnandi: Sigþór Árni Heimisson Akureyri
Línumaður: Jón Heiðar Gunnarsson ÍR
Hægra horn: Sveinn Aron Sveinsson Valur
Vinstra horn: Sturla Ásgeirsson ÍR.


Jovan Kukobat reyndist HK-ingum heldur betur erfiður


Sigþór Árni Heimisson fór á kostum gegn HK


Kristján Orri Jóhannsson sýndi frábær tilþrif í skyttuhlutverkinu

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson