Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Til hamingju Gunnar og Valþór



10. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Gunnar og Valþór í úrvalsliði 11. umferðar hjá Mbl

Morgunblaðið birti í morgun val á úrvalsliði 11. umferðar Olís-deildar karla og að þessu sinni á Akureyri tvo fulltrúa í liðinu. Það eru skyttan/leikstjórnandinn Valþór Guðrúnarson og Gunnar Malmquist Þórsson sem varnarmaður. Báðir fóru á kostum í sigurleiknum gegn HK og eru vel að þessu vali komnir.

Úrvalslið umferðarinnar að mati mbl er þannig skipað:
Vinstra horn: Bjartur Guðmundsson, Val
Vinstri skytta: Magnús Stefánsson, ÍBV
Leikstjórnandi: Andri Heimir Friðriksson, ÍBV (3)
Hægri skytta: Valþór Guðrúnarson, Akureyri (3)
Hægra horn: Sveinn Aron Sveinsson, Val (2)
Línumaður: Jón Heiðar Gunnarsson, ÍR (3)
Markvörður: Haukur Jónsson, ÍBV (2)
Varnarmaður: Gunnar Malmquist Þórsson, Akureyri (2)

Andri Heimir Friðriksson er jafnframt leikmaður umferðarinnar að mati mbl.
Tölurnar innan sviga tákna hversu oft viðkomandi hefur verið í úrvalsliði mbl.

Þessu til viðbótar má nefna að Valþór var einnig valinn í úrvalslið 11. umferðar hjá handbolti.org sem vinstri skytta en þeirra úrvalslið var líka birt í dag:

Markvörður: Daníel Freyr Andrésson, FH (5)
Línumaður: Jón Heiðar Gunnarsson, ÍR (3)
Vinstri hornamaður: Sturla Ásgeirsson , ÍR (4)
Vinstri skytta: Valþór Guðrúnarson, Akureyri (2)
Miðjumaður: Andri Heimir Friðriksson, ÍBV (2)
Hægri skytta: Árni Steinn Steinþórsson, Haukum (2)
Hægri hornamaður: Sveinn Aron Sveinsson , Val (2).


Gunnar Þórsson gengur vasklega fram í vörninni gegn HK


Valþór skorar eitt af 10 mörkum sínum gegn HK

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson