 Bjóðum Elías Má velkominn í leikmannahópinn
| | 11. júní 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarElías Már Halldórsson til liðs við AkureyriÍ dag bættist Akureyri Handboltafélagi góður liðsstyrkur fyrir komandi tímabil þegar gengið var frá samningum við Elías Má Halldórsson um að koma til liðsins. Elías Már hefur leikið með Haukum undanfarin ár og hefur verið einn af mikilvægustu mönnum Haukaliðsins.
Elías er örvhentur, góð skytta, afburðagóður spilari og mikill markaskorari. Elías skoraði 76 mörk fyrir Hauka í deildarkeppninni í vetur og var þriðji markahæstur Haukamanna. Elías er einnig liðtækur í hægra horninu og drjúgur hraðaupphlaupsmaður.
Elías Már er þrítugur reynslubolti en áður en hann kom til Hauka hafði hann leikið með HK, Stjörnunni, Empor Rostock, Haugaland og Oif Arenda. Það er því mikið fagnaðarefni að bjóða Elías velkominn í hóp Akureyrar handboltafélags. Akureyrarliðinu hefur oft reynst erfitt að glíma við Elías Má, hér sækir hann að Heimi Erni
|