 Heimir fær hér fínt tækifæri til að slípa liðið saman
| | 13. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarÆfingabúðir og leikir í VestmannaeyjumÁ fimmtudaginn heldur Akureyrarliðið til Vestmanneyja þar sem dvalið verður í æfingabúðum auk þess sem liðið leikur tvo æfingaleiki við lið Íslandsmeistara ÍBV. Þetta er að sjálfsögðu gríðarlega mikilvægt fyrir bæði liðin sem ekki hafa nálæg nágrannalið til æfingaleikja.
Við munum flytja fréttir af gangi mála í Eyjum þegar þar að kemur, en strákarnir snúa heim á sunnudaginn.
Strákarnir taka síðan þátt í árlegu Hafnarfjarðarmóti 28.-30. ágúst en auk Akureyrar keppa þar FH, Haukar og ÍBV.
Dagana 5. og 6. september verður síðan Opna Norðlenska mótið hér á Akureyri. |