Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sverre leggur Brynjari lífsreglurnar

5. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Fyrri leikdegi á Opna Norðlenska lokið - myndir

Akureyri - Hamrarnir
Heimaliðin mættust í fyrsta leik mótsins. Hamrarnir tefldu fram öflugu liði, m.a. var Hreinn Þór Hauksson í Hamraliðinu ásamt ýmsum sem eru í æfingahópi Akureyrar.
Akureyri leiddi í hálfleik 18-12 og unnu síðan sannfærandi 38-25.


Hreinn Hauksson og Valdimar Þengilsson verjast Brynjari Hólm og Þrándi

Elías Már Halldórsson var markahæstur Akureyrarliðsins með 7 mörk, Heiðar Þór Aðalsteinsson og Sigþór Árni Heimisson með 6 mörk, Jón Heiðar Sigurðsson 5, Andri Snær Stefánsson og Ingimundur Ingimundarson 3 mörk hvor, Brynjar Hólm Grétarsson, Kristján Orri Jóhannsson og Þrándur Gíslason 2 mörk hver, Daníel Einarsson og Friðrik Svavarsson 1 mark hvor.

Hjá Hömrunum var Kristján Sigurbjörnsson með 6 mörk, Birkir Guðlaugsson 5, Valdimar Þengilsson 3, Almar, Aron og Halldór Logi Árnason 2 mörk hver, Aðalsteinn Halldórsson, Arnór Þorsteinsson, Ágúst, Hreinn Hauksson og Róbert Sigurðsson 1 mark hver.

Fram - ÍR
Seinni leikur dagsins var á milli Fram og ÍR. ÍR-ingar mættu hálf vængbrotnir til leiks, Bjarni Fritzson er veikur, Björgvin Hólmgeirsson í axlarvandræðum og Jón Heiðar Gunnarsson meiddur. Enda fór það svo að Fram náði fljótt góðu forskoti, leiddi í hálfleik 15-8 og vann að lokum ellefu marka sigur, 34-23.


Fulltrúi Fram, Haraldur Þorvarðarson og ÍR-ingarnir Kristinn Björgúlfsson og Einar Hólmgeirsson mættir á staðinn

Markahæstur Framara var Garðar Sigurjónsson með 6 mörk, Ólafur Ægir 5, Ragnar Þór, Stefán Baldvin og Þorri Björnsson 4 mörk hver, Ólafur Magnússon og Sigurður Örn 3 mörk hvor, Stefán Darri 2, Arnar Freyr Ársælsson, Arnar Freyr Arnarsson og Elías Bóasson 1 mark hver.

Hjá ÍR var Arnar Birkir Hálfdánsson atkvæðamestur með 9 mörk, Sturla Ásgeirsson 7, Davíð Georgsson 4, Ingi Róbertsson 2 og Brynjar Jökull Guðmundsson 1.

Jón Óskar Ísleifsson sendi okkur nokkrar myndir frá deginum sem fylgja hér með.


Líf og fjör á vellinum


Elías Már í vörninni en hann fór mikinn í markaskoruninni


Arnar átti prýðisleik í marki Hamranna


Tomas Olavsson varði mark Akureyrar lengst af leiksins


Sverre gefur Brynjari góð ráð


Valþór Guðrúnarson verður að fylgjast með úr stúkunni næstu mánuðina


Það lá vel á fólki í stúkunni


Sölvi Snær Andrason fylgdist með leik Akureyrar og Hamranna


Og einnig leik Fram og ÍR

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson