 Spennandi móti lokiđ
| | 6. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarSeinni degi Opna Norđlenska lokiđFjórir leikir voru á dagskránni í dag og óhćtt ađ segja ađ hafi veriđ mikiđ fjör í Íţróttahöllinni.
Hamrarnir - ÍR Fyrsti leikur dagsins var á milli Hamranna og ÍR. Heimir Örn Árnason klćddist Hamrabúningnum í dag og sýndi ađ hann á ennţá ýmiss vopn í vopnabúrinu. Sömuleiđis fengu ÍR ingar lánađan Garđar Má Jónsson frá Hömrunum og reyndist hann ţeim betri en enginn. ÍR tók leikinn í sínar hendur í upphafi og náđi átta marka forskoti, 12-4 og var yfir 15-7 eftir tuttugu mínútna leik. Ţá kviknađi í Hömrunum sem söxuđu á forskotiđ ţannig ađ í hálfleik var forysta ÍR komin niđur í fjögur mörk, 19-15.
Hamrarnir voru ekki hćttir, jöfnuđu leikinn í 26-26 og komust yfir 26-27 ţegar ellefu mínútur voru til leiksloka. ÍR reyndist hins vegar sterkara á lokasprettinum og vann ţriggja marka sigur, 31-28.
Mörk Hamranna: Arnór Ţorsteinsson og Friđrik Svavarsson 7 mörk hvor, Kristján Sigurbjörnsson 6, Heimir Örn Árnason 4, Almar 2, Róbert Sigurđsson og Valdimar Ţengilsson 1 mark hvor. Arnar og Bjarki stóđu vaktina í markinu og áttu góđan leik.
Mörk ÍR: Kristinn Björgúlfsson 9, Garđar Má Jónsson og Viktor Jóhannsson 4 mörk hvor, Aron Örn Ćgisson, Brynjar Steinarsson og Ingi Rafn Róbertsson 3 mörk hver, Arnar Birkir Hálfdánsson og Brynjar Jökull Guđmundsson 2 mörk hvor og Davíđ Georgsson 1 mark. Óđinn Sigurđsson stóđ í markinu og átti góđan leik, sérstaklega í fyrri hálfleiknum.
Fram – Akureyri Annar leikur dagsins var á milli Fram og Akureyrar og var mikil spenna allan fyrri hálfleikinn, jafnt á flestum tölum og jafnt í hálfleik 11-11. Akureyri kom hinsvegar engan vegin til leiks, allavega ekki sóknarleiks, í seinni hálfleik og skoruđu ađeins tvö mörk á fyrstu tuttugu mínútunum. Ţetta nýttu Framarar sér og náđu öruggri átta marka forystu. Akureyrarliđiđ náđi ađ koma til baka og minnka muninn niđur í tvö mörk en Fram stóđst álagiđ og landađi fjögurra marka sigri, 18-22.
Mörk Akureyrar: Sigţór Árni Heimisson 4, Heiđar Ţór Ađalsteinsson og Kristján Orri Jóhannsson 3 mörk hvor, Andri Snćr Stefánsson, Elías Már Halldórsson og Ţrándur Gíslason 2 mörk hver, Daníel Einarsson og Jón Heiđar Sigurđsson 1 mark hvor.
Mörk Fram: Ari Arnaldsson 6, Ólafur Ćgir Ólafsson 4, Stefán Darri Ţórsson og Stefán Baldvin Stefánsson 3 mörk hvor, Ragnar Ţór Kjartansson og Sigurđur Örn Ţorsteinsson 2 mörk hvor, Ólafur Jóhanns Magnússon og Ţorri Björnsson 1 mark hvor.
Fram – Hamrarnir Ţriđji leikur dagsins var á milli Fram og Hamranna og trúlega sá leikur sem kom hvađ mest á óvart. Hamrarnir mćttu baráttuglađir til leiks en Framarar líklega taliđ leikinn formsatriđi. Allavega náđu Hamrarnir fljótt góđri forystu sem varđ mest sjö mörk og leiddu í hálfleik međ sex mörkum, 10 – 16. Ţar munađi ekki síst um frábćra frammistöđu Arnars í markinu en hann varđi 11 skot í fyrri hálfleiknum. Fram minnkađi muninn í upphafi seinni hálfleiks en komust lítiđ áleiđis. Leiknum lauk međ fjögurra marka sigri Hamranna 23-27. Ekki síst ţar sem Heimir Örn Árnason fór á kostum í sóknarleiknum og matađi línumennina međ slíkum snilldarsendingum ađ hann kemur sannarlega til greina sem sóknarmađur mótsins. Ţá kom Bjarki Símonarson í markiđ undir lokin og skellti eftirminnilega í lás.
Mörk Hamranna: Arnór Ţorsteinsson og Halldór Logi Árnason 7 mörk hvor, Birkir 5, Heimir Örn Árnason og Kristján Sigurbjörnsson 3 mörk hvor, Róbert Sigurđsson 2 mörk.
Mörk Fram: Sigurđur Örn Ţorsteinsson 9, Ragnar Ţór Kjartansson 4, Arnar Freyr Ársćlsson 3, Arnar Freyr Arnarsson og Stefán Baldvin Stefánsson 2 mörk hvor, Ari Arnaldsson 1 mark.
Akureyri – ÍR Lokaleikur mótsins var síđan á milli Akureyrar og ÍR. Ingimundur hvíldi ţennan leik en ađ öđru leiti lögđu menn lokakraftinn í leikinn. Markverđir beggja liđa fóru á kostum og leikurinn í járnum, jafnt í hálfleik 14-14. Akureyri náđi undirtökunm í seinni hálfleik en gekk erfiđlega ađ hrista ÍR af sér. Undir lokin náđist fimm marka forysta en eftir töluverđa dramatík ţar sem dauđafćri fóru forgörđum á báđa bóga vann Akureyri ţriggja marka sigur, 26-23.
Mörk Akureyrar: Andri Snćr Stefánsson 8, Elías Már Halldórsson 4, Daníel Einarsson og Ţrándur Gíslason 3 mörk hvor, Halldór Logi Árnason, Jón Heiđar Sigurđsson og Sigţór Árni Heimisson 2 mörk hver, Brynjar Hólm Grétarsson og Kristján Orri Jóhannsson 1 mark hvor. Tómas varđi 17 skot í leiknum.
Mörk ÍR: Davíđ Georgsson 7, Arnar Birkir Hálfdánsson og Sturla Ásgeirsson 5 mörk hvor, Eggert Jóhannsson og Ingi Rafn Róbertsson 3 mörk hvor, Brynjar Jökull Guđmundsson og Jakob Stefánsson 1 mark hvor. Svavar Már Ólafsson varđi sömuleiđis 17 skot í ÍR markinu.
Ţegar upp er stađiđ ţá var Akureyri međ 4 stig og 12 mörk í plús, Fram sömuleiđis međ 4 stig en 11 mörk í plús. ÍR fékk 2 stig en er međ 11 mörk í mínus, Hamraranir fengu líka 2 stig en eru međ 12 mörk í mínus.
Á lokahófi í kvöld verđa veitt viđurkenningar fyrir besta sóknarleikmann, varnarleikmann og markvörđ mótsins. |