 Heiðar Þór skorar gegn Stjörnunni í fyrsta heimaleik tímabilsins
| | 17. nóvember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarHeiðar Þór Aðalsteinsson í nærmynd hjá Akureyri.netÁ leikdegi kynnir vefurinn Akureyri.net ákveðinn leikmann Akureyrar Handboltafélags. Í dag kynnir Þorleifur Ananíasson vinstri hornamanninn og nýbakaðan föður, Heiðar Þór Aðalsteinsson en leikurinn hefst klukkan 19:00 í Íþróttahöllinni:
Heiðar Þór kom gríðarlega sterkur inn hjá Akureyri í fyrstu leikjum vetrarins eftir að hafa leikið með Hömrunum á síðasta tímabili. Heiðar er á góðum degi mjög öruggur í horninu auk þess að vera ein helsta vítaskytta liðsins. Vonandi verður Heiðar Þór í stuði gegn hinu sterka liði Hauka og nær að velgja þeim undir uggum.
Fullt nafn: Heiðar Þór Aðalsteinsson
F.d. mán ár: 29 ágúst 1988
Prenthæft gælunafn: Heiddi
Með hvaða félögum hefur þú leikið: Þór, Gróttu, Val, Hömrunum og Akureyri
Hefur þú leikið í landsliði: Öllum yngri landsliðum Íslands (U17, U19 og U21)
Hver er þín besta staða á vellinum: Vinstra horn
Hver er/var fyrirmynd þín í handbolta: Lars Christiansen
Uppáhaldsíþrótt önnur en handbolti: Fótbolti
Hjátrú fyrir leiki: Alveg laus við það
Besti samherji sem þú hefur leikið með: Heimir Árna, hrikalega góður að mata mann í horninu. Diddi er reyndar að koma sterkur inn.
Erfiðasti andstæðingur sem þú hefur leikið gegn: Hlynur Morthens
Eitthvað að lokum(hvað sem er): Jón Heiðar er hrikalega flottur strákur.  Heiðar Þór fagnar marki gegn Val (Hlyni Morthens) 2. október 2014
|