Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Strákarnir léku á alls oddi í dag





17. nóvember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Haukarnir heldur betur teknir í bakaríiđ

Ţađ reiknuđu örugglega allir međ hörkuslag í Höllinni í kvöld ţegar Akureyri tók á móti Haukum í Olís-deildinni. Og ţađ má svo sannarlega segja ađ upphaf leiksins benti líka til ţess. Strax á fyrstu mínútu varđ Akureyri fyrir ţví áfalli ađ Heimir Örn Árnason sneri illa á sér ökklann og varđ ađ haltra útaf og kom ekki meira viđ sögu í leiknum.


Heimir lá allan leikinn međ íspoka viđ snúinn öklann

Stöđu Heimis í sókninni tók Brynjar Hólm Grétarsson en hans leiktími varđ ekki langur ţví í sinni fyrstu sókn fékk hann duglegt högg á höndina og varđ ađ yfirgefa völlinn. Brynjar var skömmu síđar sendur upp á sjúkrahús međ umbúnađ um höndina og kom ekki heldur viđ sögu meir.

Haukarnir bitu sem sé frá sér í vörninni og jafnt á fyrstu tölum upp í 3-3 en ţá komu líka sex Akureyrarmörk í röđ og stađan skyndilega orđin 9-3 eftir fjórtán mínútna leik. Vörn Akureyrar var í einu orđi sagt stórkostleg og Tomas Olason í miklum ham ţar fyrir aftan.

Haukar virtust algjörlega ráđalausir og Akureyri hélt áfram ađ auka muninn. Eftir rúmar sautján mínútur var stađan orđin 11-4 en ţá missti Akureyri enn einn leikmanninn í međsli. Ađ ţessu sinni var ţađ Ingimundur sem fékk mikiđ högg á höndina og skipti engum togum ađ hann ţurfti ađ yfirgefa Höllina og leita ađhlynningar á sjúkrahúsinu og kom ekki viđ sögu meir í leiknum

Ţessi skakkaföll virtust bara ţjappa liđinu saman og áfram var haldiđ ađ valta yfir Haukana og varđ munurinn mestur níu mörk, 13-4 áđur en Haukar náđu ađ skora sitt fimmta mark sem kom eftir rúmlega tuttugu mínútna leik. Ţađ segir allt sem segja ţarf um vörn og markvörslu Akureyrarliđsins.

Haukar klóruđu í bakkann ţađ sem eftir var hálfleiksins og minnkuđu muninn í sjö mörk međ heldur billegu vítakasti á lokasekúndu hálfleiksins, stađan 16-9 fyrir Akureyri.


Elías Már reyndist heldur betur erfiđur sínum gömlu félögum

Tomas Olason varđi 11 skot í hálfleiknum - ţar af eitt vítakast. Elías Már Halldórsson var gríđarlega öflugur og skorađi fjögur glćsimörk í hálfleiknum, Kristján Orri Jóhannsson var međ 5 mörk, ţar af 3 úr vítum. Heiđar Ţór Ađalsteinssson 4, Sigţór Árni Heimisson 2 og Bergvin Ţór Gíslason 1 mark.

Menn reiknuđu međ ađ Haukarnir kćmu dýrvitlausir í seinni hálfleikinn, ţeir reyndu ýmislegt léku t.d. međ aukamann í sókninni um tíma án ţess ađ ţađ skilađi miklu. Ţeim tókst reyndar ađ minnka muninn niđur í fimm mörk, 17-12 og seinna 19-14 en ţá gaf Akureyri bara í á nýjan leik.

Fimm mörk heimamanna í röđ juku forskotiđ upp í tíu mörk, 24-14 áđur en Haukar náđu ađ svara. Aftur varđ munurinn tíu mörk í stöđunni 28-18 og ađeins fjórar mínútur til leiksloka. Á ţeim tíma sem eftir var slökuđu Akureyringar ađeins á, klúđruđu vítakasti og nokkrum ágćtum fćrum. Haukar náđu í stađinn ađeins ađ bjarga andlitinu og skoruđu síđustu ţrjú mörk leiksins ţannig ađ lokatölurnar urđu sjö marka sigur, 28-21.


Sverre stýrđi vörninni af gríđarlegum krafti

Allt liđiđ lék frábćrlega og segja má ađ varnarleikurinn hafi lagt grunninn ađ sigrinum en baráttan ţar var hreint til fyrirmyndar og eins og áđur hefur komiđ fram var Tomas stórkostlegur í markinu ţar fyrir aftan.
Sóknarleikurinn gekk líka mjög vel, ţađ ađ missa ţrjár skyttur út úr liđinu hefđi trúlega getađ fariđ međ leikinn en Sigţór Árni, Bergvin Ţór og Elías Már öxluđu ábyrgđina frábćrlega. Sissi var frábćr á miđjunni og matađi hornamennina Kristján Orra og Heiđar Ţór af stakri list og ţeir ţökkuđu fyrir sig međ ţví ađ rađa inn mörkum úr hornunum. Sem sé frábćr sigur liđsheildarinnar.

Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jóhannsson 10 (3 úr vítum), Heiđar Ţór Ađalsteinsson 8, Elías Már Halldórsson og Sigţór Árni Heimisson 4 hvor, og Bergvin Ţór Gíslason 2.
Tomas stóđ í markinu allan leikinn og varđi 18 skot – ţar af 1 vítakast.

Mörk Hauka: Adam Haukur Baumruk, Árni Steinn Steinţórsson, Tjörvi Ţorgeirsson og Ţröstur Ţráinsson 4 mörk hver, Einar Pétur Pétursson og Heimir Óli Heimisson 2 mörk hvor og loks Egill Eiríksson međ 1 mark.
Markveđi hauka ţeir Einar Ólafur Vilmundarson og Einar Ólafur Vilmundarson vörđu 7 skot hvor, Einar eitt vítakast.

Í lok leiksins var Tjörvi Ţorgeirsson valinn besti mađur Haukaliđsins en Kristján Orri Jóhannsson besti mađur Akureyrarliđsins og fengu báđir ađ vanda glćsilega matarkörfu frá Norđlenska ađ launum.


Tjörvi Ţorgeirsson valinn mađur Haukaliđsins - ekkert of broshýr samt sem áđur


Hlynur Jóhannsson afhenti Kristjáni Orra matarkörfuna góđu eftir leikinn

Međ sigrinum fór Akureyri uppfyrir Hauka í stigatöflunni og ekki var verra ađ nú stendur Akureyri betur í innbyrđis leikjum liđanna en Haukar unnu fyrsta leikinn međ 1 marki en Akureyri vinnur nú međ 7 mörkum.

Nćsti leikur Akureyrar er útileikur gegn Stjörnunni á laugardaginn og síđan koma raunar tveir útileikir til viđbótar, gegn Val og ÍBV.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson