 Fjölnir er í Grafarvoginum
| | 20. nóvember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri spilar gegn Fjölni í bikarkeppninniÍ kvöld var dregið í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar, sem í ár nefnist Coca Cola bikarinn. Akureyri dróst á móti 1. deildarliði Fjölnis. Þó að Akureyri hafi verið dregið á undan þá á Fjölnir samt heimaleikjaréttinn samkvæmt ákvæði í reglugerð HSÍ um bikarkeppni en þar segir: „þá skal einnig það lið, sem er í lægri deild, ávallt fá heimaleik gegn liði sem er úr efri deildum.“
Liðin sem drógust saman eru: Akureyri - Fjölnir Afturelding - Víkingur ÍBV 1 - Grótta eða ÍR Þróttur R. - ÍBV 2 HK - Stjarnan KR - Valur Haukar 2 - Haukar 1 Fram - FH
Grótta og ÍR eiga eftir að leika í 32-liða úrslitunum þannig að sigurvegari þess leiks mætir ÍBV.
Samkvæmt dagskrá HSÍ eiga bikarleikirnir að fara fram mánudaginn 1. desember en endanlegur leikdagur verður trúlega samkomulagsatriði á milli liðanna.
Þess má geta að þjálfari Fjölnis er enginn annar en Akureyringurinn Arnar Gunnarsson en Addi mætti með liðið hingað norður um síðustu helgi til að spila við Hamrana. Fjölnir fór þar með dramatískan eins marks sigur á lokaandartökum leiksins. Arnar Gunnarsson fylgist með sínu liði gegn Hömrunum
|