 Tomas búinn að vera flottur í markinu
| | 22. nóvember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarTomas Olason í nærmynd hjá Akureyri.netÍ tilefni leikdags hjá Akureyri kynnir Þorleifur Ananíasson hjá Akureyri.net einn leikmann liðsins. Í dag er það markvörðurinn Tomas Olason sem svarar spurningum Þorleifs:
Tomas OlasonAkureyri á erfiðan leik fyrir höndum er liðið mætir Stjörnunni á laugardaginn kl. 16.00 í Mýrinni. Eftir áföllin gegn Haukum má reikna með löskuðu liði Akureyrar, en Stjörnumenn hafa verið í framför að undanförnu og eru baneitraðir.
Í tilefni leiksins kynnum við þann leikmann sem að mínu mati hefur komið mest á óvart í liði Akureyrar það sem af er Íslandsmóti, markvörðinn Tomas Olason. Tomas hefur að mestu vermt varamannabekkinn s.l. tvö ár eða svo, en vegna meiðsla Hreiðars Levý fékk hann óvænt tækifærið í upphafi tímabilsins.
Eftir erfiða byrjun small hann allt í einu í gang og hefur í undanförnum leikjum verið einn besti maður liðsins. Tomas er svona allt eða ekkert markvörður að mínu mati. Hann getur hreinlega lokað markinu, en síðan koma dagar sem hann ver lítið sem ekkert. Enginn millivegur hjá honum, allt eða ekkert. Vonandi verður það allt á laugardaginn, ekki mun veita af.
Fullt nafn: Tomas Vestergaard Llason
F.d. mán ár: 30. mars 1992
Prenthæft gælunafn: Tómas
Með hvaða félögum hefur þú leikið: Odder Håndbold, Århus Håndbold, Akureyri Handboltafélag
Hefur þú leikið í landsliði: Danska U18 Landsliði
Hver er þín besta staða á vellinum: Markvörður
Hver er/var fyrirmynd þín í handbolta: Kasper Hvidt
Uppáhaldsíþrótt önnur en handbolti: Fótbolti á grasi
Hjátrú fyrir leiki: Never shave before a game
Besti samherji sem þú hefur leikið með: Andri Snær Stefánsson
Erfiðasti andstæðingur sem þú hefur leikið gegn: Guðmundur Hólmar
Eitthvað að lokum(hvað sem er): Akureyri er alveg yndislegu bær og ég elska ađ búa hér. Tomas fór gjörsamlega á kostum og lokaði markinu gegn HK 13. nóvember 2014
|