 Fyrsta viðureign þessara liða í sögunni
| | 8. desember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarBikarleikur gegn Fjölni á þriðjudaginn Akureyri hefur leik í Coca-Cola Bikarnum gegn Fjölni í Grafarvoginum á þriðjudaginn. Fjölnir leikur í 1. deild og situr sem stendur í 3. sæti deildarinnar, stigi á undan Hömrunum. Akureyringurinn Arnar Gunnarsson þjálfar liðið og hefur verið að gera flotta hluti með Fjölnis liðið og klárlega stefnir í hörkuleik.
Fjölnir lék við Hamrana hér í Höllinni þann 15. nóvember og vann þar eins marks sigur eftir æsispennandi lokamínútur, 18-19.
Þess má til gamans geta að þetta er í fyrsta sinn sem Akureyri og Fjölnir mætast á vellinum. Leikurinn er sýndur beint á vefnum en að sjálfsögðu hvetjum við stuðningsmenn á höfuðborgarsvæðinu til að kíkja í Grafarvoginn og styðja strákana, leikurinn hefst klukkan 18:00 á þriðjudaginn.
|