 Brynjar er reyndar með skothendina í gifsi þessa dagana
| | 9. desember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarBrynjar Hólm í nærmynd hjá Akureyri.netÞá er komið að fyrsta bikarleik Akureyri á tímabilinu, en hann hefst kl. 18.00 í dag og verður sýndur í beinni hér á síðunni. Mótherjarnir eru 1. deildarlið Fjölnis og fer leikurinn fram á heimavelli þeirra í Grafarvoginum. Í tilefni leikdags birtum við að vanda nærmynd Þorleifs Ananíassonar sem í dagi kynnir skyttuna ungu, Brynjar Hólm Grétarsson. Þorleifur er reyndar ekki alltof viss hvort leikurinn geti farið fram vegna veðurs, en Akureyrarliðið á að mæta í flug klukkan 14:30 í dag.
Gefum Þorleifi orðið: Miðað við allt sem á undan er gengið er ekki auðvelt að spá fyrir um úrslit, en flestir veðurfræðingar munu eflaust spá því að leiknum verði frestað vegna mjög svo óhagstæðrar veðurspár fyrir þriðjudaginn.
En við kynnum að þessu sinni til leiks skyttuna ungu Brynjar Hólm Grétarsson sem því miður er væntanlega úr leik hjá Akureyri það sem eftir er leiktíðar eftir að hafa úlnliðsbrotnað í leik gegn Haukum á dögunum. Það er gríðarleg blóðtaka fyrir Akureyri þar sem Brynjar Hólm er stórefnilegur leikmaður, stór og sterkur og ætti að geta náð langt í framtíðinni svo fremi hann sleppi við alvarleg meiðsli í framtíðinni. Sverrir Jakobsson annar þjálfara Akureyri orðaði það svo fimlega á dögunum aðspurður um Brynjar Hólm að hann væri verkefni.
Fullt nafn: Brynjar Hólm Grétarsson
F.d. mán ár: 22.febrúar 1994
Prenthæft gælunafn: binni, big ben
Með hvaða félögum hefur þú leikið: Þór og Akureyri
Hefur þú leikið í landsliði: Var í landsliðinu á Shell mótinu í eyjum
Hver er þín besta staða á vellinum: Skytta
Hver er/var fyrirmynd þín í handbolta: Bartlomiej Jaszka og Karabatic
Uppáhaldsíþrótt önnur en handbolti: NBA
Hjátrú fyrir leiki: ekkert svoleiðis
Besti samherji sem þú hefur leikið með: Arnór Þorri
Erfiðasti andstæðingur sem þú hefur leikið gegn: Sennilega ekkert leiðinlegara en að spila sókn á móti Hreinsa
Eitthvað að lokum(hvað sem er): Endilega halda áfram að mæta og styðja okkur, þið eruð öll glæsileg. Brynjar fann glufu og nýtti hana vel gegn HK 13. nóvember 2014
|