Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Arnór Ţorri var drjúgur í leiknum í dag

24. janúar 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Ţriggja marka sigur á Gróttu - myndir

Ţađ var býsna skrautlegur leikur hjá Akureyri og Gróttu í 2. flokki í dag. Akureyrarliđiđ byrjađi leikinn af miklum krafti, komst í 6-1 og virtist ekki ţurfa ađ hafa mikiđ fyrir hlutunum. Gróttumenn komust ţó til baka og minnkuđu muninn en heimamenn kláruđu hálfleikinn af krafti og leiddu međ fimm mörkum í hálfleik, 15-10.


Bernharđ Anton Jónsson var frábćr í fyrri hálfleiknum

Fyrri hálfleikurinn var sem sé ţokkalegur hjá strákunum og Bernharđ međ magnađan leik í markinu. Í seinni hálfleik virtust strákarnir varla mćta til leiks og varla nenna ađ klára leikinn. Gróttumenn gengu á lagiđ og minnkuđu muninn niđur í eitt mark strax í upphafi.


Birkir Guđlaugsson á flugi og eitt af sex mörkum hans í uppsiglingu

Grótta lék fimm+einn vörn og hvađ eftir annađ hentu Akureyrarstrákarnir boltanum í beint í lúkurnar á miđjumanninum og Gróttumenn svöruđu fyrir sig međ auđveldum mörkum. Grótta náđi ađ jafna leikinn en međ skynsömum leik á lokamínútunum og góđri innkomu Arnar Fylkissonar í markiđ lönduđu strákarnir ţriggja marka sigri, 29-26 í lokin og eru ţví enn međ fullt hús stiga í deildinni eftir fjóra leiki.


Arnar Ţór ver vítakast međ tilţrifum

Mörk Akureyrar: Arnór Ţorri Ţorsteinsson 6, Birkir Guđlaugsson 6, Kristján Sigurbjörnsson 6, Patrekur Stefánsson 5, Arnţór Finnsson 3, Reynir Örn Hannesson 2, Róbert Sigurđsson 1 mark.

Sjá fleiri myndir Ţóris Tryggvasonar frá leiknum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson