 Til hamingju Heimir
| | 7. febrúar 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarHeimir Örn í úrvalsliði 17. umferðar hjá fimmeinn.isSérfræðingar vefsíðunnar fimmeinn.is hafa valið úrvalslið hverrar umferðar Olís deildar karla á tímabilinu. Nú hafa þeir tilkynnt val sitt á úrvalsliði 17. umferðar sem lauk á fimmtudagskvöldið.
Akureyri Handboltafélag á einn fulltrúa í úrvalsliðinu en það er enginn annar en reynsluboltinn Heimir Örn Árnason sem var valinn besti miðjumaður u mferðarinnar. Við óskum Heimi til hamingju með útnefninguna svo og öllum sem voru valdir í liðið en það er þannig skipað:
Markvörður: Ágúst Elí Björgvinsson, FH Vinstri skytta: Andri Berg Haraldsson, FH Vinstri horn: Grétar Þór Eyþórsson, ÍBV Miðja: Heimir Örn Árnason, Akureyri Lína: Jón Þorbjörn Jóhannsson, Haukar Hægri horn: Starri Friðriksson, Stjarnan Hægri skytta: Jóhann Gunnar Einarsson, Afturelding Heimir Örn Árnason brýst í gegnum ÍR vörnina og skorar fyrsta mark Akureyrar í 17. umferðinni
|