 Bergvin allur að koma til eftir meiðslin
| | 7. febrúar 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarBergvin Þór Gíslason í nærmynd hjá Akureyri.netÍ tilefni stórleiks Akureyrar og Vals í bikarnum á morgun kynnir Þorleifur Ananíasson einn leikmann Akureyrar á vefnum akureyri.net. Að þessu sinni er það Bergvin Þór Gíslason og fer kynningin hér á eftir:
Í tilefni stórleiks Akureyri og Vals í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar sem verður leikinn í Íþróttahöllinni á Akureyri kl. 16.00 á sunnudaginn kynnum við til leiks Bergvin Þór Gíslason. Beggi er að komast á skrið að nýju eftir um tveggja ára ítrekuð og alvarleg meiðsli á öxl. Fyrir meiðslin blasti við honum björt framtíð í handboltanum og var hann af flestum talinn einn efnilegasti handboltamaður landsins. Beggi er gríðarlega tekniskur leikmaður og kraftmikill, góður bæði í vörn og sókn og getur leikið í flestum stöðum á vellinum. Verkefni hans og félaga hjá Akureyri verður þó ærið á sunnudaginn gegn besta liði Íslands um þessar mundir, en sigurverðlaunin í þeim leik ekki af verri endanum. Sæti í síðustu fjórum í bikarhelgi í Laugardalshöllinni síðar í vetur þar sem leikið verður til úrslita í bikarnum. Vonandi gengur Begga og félögum allt í haginn á sunnudaginn og vonandi kemst hann aftur á það skrið sem hann var á fyrir meiðslin og kemst þangað sem stefndi, í Íslenska landsliðið í handbolta.
Fullt nafn: Bergvin Þór Gíslason
F.d. mán ár: 30.07.91
Prenthæft gælunafn: Beggi.
Með hvaða félögum hefur þú leikið: Akureyri.
Hefur þú leikið í landsliði: Nei.
Hver er þín besta staða á vellinum: v-Skytta/horn.
Hver er/var fyrirmynd þín í handbolta: Jackson Richardson.
Uppáhaldsíþrótt önnur en handbolti: Fótbolti og NBA.
Hjátrú fyrir leiki: Engin hjátrú.
Besti samherji sem þú hefur leikið með: Er búinn að spila við hlið Valþórs upp alla yngri flokka og alveg upp í mfl, mjög góður samherji. Það er einnig þægilegt að spila með Heimi Árna. Annars er Jón Heiðar alger meistari líka.
Erfiðasti andstæðingur sem þú hefur leikið gegn: Erfitt gera upp á milli.
Eitthvað að lokum (hvað sem er): #StriveForGreatness! Bergvin Þór Gíslason í góðu færi í leiknum gegn ÍR á fimmtudaginn
|