Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hreiðar og Andri voru bestu menn Akureyrar í leiknum



25. febrúar 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Myndband frá fyrsta sjónvarpsleik Akureyrar

Akureyri Handboltafélag hefur ekki oft fengið að spila í beinni útsendingu í sjónvarpinu en fyrsti sjónvarpsleikur félagsins var gegn Fylki þann 10. febrúar 2007. Eftir hörkuleik þá gáfu okkar menn eftir þegar liðið var á síðari hálfleikinn og Fylkismenn fóru með sigur af hólmi 29-23.

Við erum búin að klippa leikinn til og má sjá þar öll mörk Akureyrar í leiknum, nokkur mörk frá Fylkismönnum og nokkrar flottar vörslur hjá Hreiðari Levý.

Mjög gaman er að rifja upp leikinn og þá sérstaklega vegna þess að í liði Fylkis voru 4 leikmenn sem spiluðu síðar með Akureyri en það eru þeir Heimir Örn Árnason, Guðlaugur Arnarsson, Hreinn Þór Hauksson og Brynjar Þór Hreinsson.

Hvor hálfleikur fær 10 mínútur í myndbandinu og svo endar það á viðtölum við þá Guðlaug, Heimi og Hreiðar, sjón er sögu ríkari!

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson