 Beggi og félagar þurfa þinn stuðning á morgun!
| | 29. mars 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarSíðasti heimaleikurinn í deildinni, frítt inn!
Akureyri leikur sinn síðasta heimaleik í Olís Deildinni á morgun þegar FH kemur í heimsókn. FH situr í 4. sæti deildarinnar á meðan Akureyri er í 5. sæti, þrjú stig skilja liðin að. Það verður frítt inn á leikinn og því um að gera að fjölmenna í Höllina og upplifa magnaðan handboltaleik.
Akureyri sigraði Hauka í gær og fór þá upp fyrir Hauka og ÍBV í deildinni, en það er stutt á milli í þessari baráttu. Sigri Akureyri FH á morgun verður liðið aðeins einu stigi á eftir FH fyrir lokaumferðina, en tapist leikurinn þá er líklegt að Haukar eða ÍBV fari upp fyrir liðið á ný. Það er því mikið undir í leiknum á morgun. Hér má sjá stöðuna í deildinni þegar aðeins tvær umferðir eru eftir.
| Nr. | Félag | Leikir | U | J | T | Mörk | Hlutfall | Stig | | - | | 1. | Valur | 25 | 19 | 2 | 4 | 682 : 585 | 97 | 40 | : | 10 | | 2. | Afturelding | 25 | 17 | 3 | 5 | 637 : 576 | 61 | 37 | : | 13 | | 3. | ÍR | 25 | 13 | 4 | 8 | 682 : 653 | 29 | 30 | : | 20 | | 4. | FH | 25 | 13 | 2 | 10 | 659 : 645 | 14 | 28 | : | 22 | | 5. | Akureyri | 25 | 11 | 3 | 11 | 608 : 607 | 1 | 25 | : | 25 | | 6. | Haukar | 25 | 9 | 6 | 10 | 618 : 587 | 31 | 24 | : | 26 | | 7. | ÍBV | 25 | 10 | 3 | 12 | 630 : 626 | 4 | 23 | : | 27 | | 8. | Fram | 25 | 9 | 1 | 15 | 566 : 655 | -89 | 19 | : | 31 | | 9. | Stjarnan | 25 | 7 | 3 | 15 | 625 : 669 | -44 | 17 | : | 33 | | 10. | HK | 25 | 3 | 1 | 21 | 597 : 701 | -104 | 7 | : | 43 |
Efstu 8 lið deildarinnar fara í úrslitakeppni þar sem barist verður um Íslandsmeistaratitilinn. 8-liða úrslitin raðast upp svona: 1. sæti gegn 8. sæti 2. sæti gegn 7. sæti 3. sæti gegn 6. sæti 4. sæti gegn 5. sæti
Efstu fjögur liðin hafa heimaleikjarétt í einvíginu en það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer áfram í undanúrslit. Það getur því verið ansi mikilvægt að hafa heimaleikjaréttinn.
Með Akureyrskum sigri á morgun er enn möguleiki á að taka 4. sætið af FH og þar með ná heimaleikjaréttinum. Tapist leikurinn hinsvegar mun liðið líklega detta neðar í deildinni og fá þá andstæðing í úrslitakeppninni sem endar ofar í deildinni.
Akureyrarliðið þarf á þínum stuðning að halda, Akureyri - FH hefst klukkan 19:30 í Íþróttahöllinni og við viljum sjá troðfulla Höll! Akureyrarliðið er á góðu skriði og hefur náð í 9 stig af síðustu 12 mögulegum og á stuðninginn svo sannarlega skilinn! |