Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það á ekki af Valþóri að ganga

24. apríl 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Valþór með slitið krossband, á leið í aðgerð

Valþór Guðrúnarsson sem átti mjög góða leiktíð með Akureyri í fyrra er á leið í aðgerð vegna slitins krossbands. Valþór hefur verið gríðarlega óheppinn með meiðsli en hann lék ekkert með Akureyri á nýliðnu tímabili vegna axlarmeiðsla.

Kappinn var að ná sér aftur á strik og lék nokkra leiki með liði Hamranna þegar liðið var á tímabilið en sleit svo krossband í leik gegn Víking í umspili um laust sæti í Olís Deildinni.

Við óskum Valþóri góðs bata og vonum að hann haldi ótrauður áfram enda kann hann ýmislegt fyrir sér í handboltanum og getur náð langt.


Valli skoraði 73 mörk á tímabilinu 2013-2014 og var þá tvisvar valinn maður leiksins, þar á meðal í leik gegn HK þar sem hann skoraði 10 mörk. Myndin er úr þeim leik

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson