 Sverre bætir við sig landsleikjum
| | 28. apríl 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarSverre með landsliðinu gegn SerbumSverre Andreas Jakobsson verður í landsliðshópi Íslands í leikjunum mikilvægu gegn Serbum í undankeppni Evrópumótsins. Ísland mætir Serbum tvívegis og þarf að vinna að minnsta kosti annan leikinn til að eiga áfram möguleika á að komast á EM.
Sverre hafði gefið það út eftir HM í Katar fyrr á árinu að hann væri hættur með landsliðinu en hann myndi líklega gefa kost á sér aftur ef eftir honum yrði óskað. Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari hafði samband við okkar mann sem skoraðist ekki undan og er mættur á ný í landsliðið okkar.
Sverre reiknar með að Serbaleikirnir verði þeir síðustu en hann vill gjarnan enda landsliðsferilinn á jákvæðu nótunum en hans síðasti leikur var tap gegn Danmörku á HM í Katar, en með tapinu féll Ísland úr leik.
Sverre er kominn með 180 landsleiki en nær nú líklega að hífa þá upp í 182.
Ísland tekur á móti Serbum í Laugardalshöll á morgun, miðvikudag, klukkan 19:30 og hvetjum við alla til að mæta og styðja landsliðið. Leikurinn verður einnig sýndur á RÚV, Áfram Ísland |