 Við bjóðum Jovan Kukobat velkominn til Íslands
| | 17. október 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarJovan Kukobat mættur til VestmannaeyjaÞó að Akureyri færi ekki til Vestmannaeyja um helgina er þar þó staddur fyrrum leikmaður Akureyrar. Eyjamenn eru að spila við ísraelska liðið Hapoel Ramat Gan í 2. umferð áskorendabikars Evrópu en markvörður þess er enginn annar en góðvinur okkar Jovan Kukobat.
Jovan Kukobat stóð í markinu hjá Hapoel Ramat Gan og var langbesti maður liðsins, varði 17 skot og hélt sínum mönnum inni í leiknum þrátt fyrir fjögurra marka tap en ÍBV vann að lokum 25-21.
Liðin leika aftur á morgun, sunnudag og verður fróðlegt að fylgjast með framgöngu Kukobat í þeim leik. Jovan Kukobat með glæsileg tilþrif í leik með Akureyri
|