Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hreiðar á 146 landsleiki fyrir Ísland

20. október 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hreiðar valinn aftur í landsliðið

Markvörðurinn okkar hann Hreiðar Levý Guðmundsson hefur verið valinn í íslenska landsliðið sem tekur þátt í æfingamóti í Noregi þar sem leikið verður gegn heimamönnum, Danmörku og Frakklandi. Mótið fer fram í byrjun nóvember og er liður í undirbúningi Íslands fyrir Evrópumótið sem fer fram í janúar.

Það er virkilega gaman að sjá Hreiðar aftur í hópnum enda hefur kappinn staðið sig frábærlega í marki Akureyrar það sem af er tímabilinu og hann kominn í toppform.

Einnig í hópnum eru Arnór Atlason og Guðjón Valur Sigurðsson sem léku með KA og Arnór Þór Gunnarsson sem lék með Þór.

Annars er hópurinn svona:
Markmenn:
Aron Rafn Eðvarðsson, Álaborg
Björgvin Páll Gústavsson, Bergischer
Hreiðar Levý Guðmundsson, Akureyri

Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarson, Fram
Arnór Atlason, St.Raphael
Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer
Aron Pálmarson, Veszprem
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Nimes
Bjarki Már Elísson, Füchse Berlin
Bjarki Már Gunnarsson, Aue
Guðjón Valur Sigurðsson, Barcelona
Guðmundur Árni Ólafsson, Mors-Thy
Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV
Ólafur Bjarki Ragnarsson, Eisenach
Róbert Gunnarsson, PSG
Rúnar Kárason, TSV Hannover-Burgdorf
Snorri Steinn Guðjónsson, Nimes
Tandri Már Konráðsson, Ricoh HK
Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV
Vignir Svavarsson, Midtjylland
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson