Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

597 dagar liðu á milli sjónvarpsleikja Akureyrar

27. október 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur Vals og Akureyrar sýndur á RÚV!

Laugardaginn 31. október mætir Akureyri toppliði Vals á Hlíðarenda. RÚV (Ríkissjónvarpið) hefur nú gefið út að þeir munu sýna leikinn í beinni útsendingu sem er frábært enda flestir stuðningsmenn Akureyrar staðsettir á Akureyri og hafa því ekki tök á að mæta á leikinn.

Virkilega ánægjulegar fréttir en Akureyri hefur ekki beint fengið marga sjónvarpsleiki undanfarin ár en þetta verður fyrsti sjónvarpsleikur félagsins síðan 13. mars 2014 þegar liðið mætti Fram.

Við hvetjum ykkur því til að fylgjast grannt með gangi mála í sjónvarpinu á laugardaginn og sýna að Akureyri tryggi áhorf þegar leikir félagsins eru sýndir í sjónvarpinu.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson