Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Þetta var síðasta mark Jonna fyrir Akureyri

28. október 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Þegar Jonni jafnaði gegn Val á lokasekúndunni

Í tilefni leiks Vals og Akureyrar á laugardaginn ætlum við að rifja upp skemmtilegt atvik. Valur og Akureyri mættust í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta tímabilið 2009-2010. Liðin höfðu unnið sitthvorn leikinn og mættust í svakalegum oddaleik þann 26. apríl 2010. Þegar 8 sekúndur lifðu leiks voru Akureyringar með boltann marki undir og reyndu að tryggja framlengingu.

Það tókst eftir áhugaverða sókn þar sem Árni Þór Sigtryggsson sendi á Heimi Örn Árnason, sem sendi á Hrein Hauksson sem kom boltanum í hendur Jónatans Þórs Magnússonar sem hafði komið sér fyrir á línunni og skoraði af öryggi.

Valsmenn reyndust hinsvegar sterkari í framlengingunni og fóru áfram í úrslitin. Þetta var síðasta mark Jónatans fyrir Akureyri en hann yfirgaf liðið og gekk í raðir Kristiansunds í Noregi.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson