Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Til hamingju Heiðar Þór og Hreiðar Levý



28. október 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Heiddi og Hreiðar í liði 10. umferðar á fimmeinn.is

Nú rétt í þessu var vefurinn fimmeinn.is að birta val sitt á úrvalsliði 10. umferðar Olís deildar karla. Grótta og Akureyri eiga flesta fulltrúa í úrvalsliðinu að þessu sinni, Grótta þrjá og Akureyri tvo, þá Hreiðar Levý Guðmundsson markvörð og hornamanninn Heiðar Þór Aðalsteinsson.


Heiðar Þór Aðalsteinsson var í miklum ham og raðaði inn mörkum gegn ÍR

Í þessari umferð vann Grótta mikinn baráttusigur á Aftureldingu í sögulegum leik þar sem rauð spjöld fóru á loft. Akureyri vann hins vegar öruggan sigur á ÍR í bráðfjörugum leik þar sem þeir félagar Hreiðar og Heiðar fóru á kostum.

Lið 10. umferðarinnar er þannig að mati tíðindamanna fimmeinn.is:
Markmaður: Hreiðar Levý Guðmundsson, Akureyri
Vinstra horn: Heiðar Þór Aðalsteinsson, Akureyri.
Vinstri skytta: Andri Heimir Friðriksson, ÍBV.
Miðja: Aron Pálsson Gróttu.
Hægri skytta: Viggó Kristjánsson, Gróttu.
Hægra horn: Finnur Ingi Stefánsson, Grótta.
Lína: Jón Þorbjörn Jóhannsson, Haukum.

Við óskum þeim öllum til hamingju með viðurkenninguna.


Hreiðar Levý með snilldarmarkvörslu

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson