Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Valsmenn eru með feikisterkt lið

31. október 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Sjónvarpsleikur gegn Val

Akureyri sækir topplið Vals heim í dag í Vodafone Höllinni að Hlíðarenda klukkan 16:00. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV og hvetjum við alla sem ekki komast á leikinn til að fylgjast með gangi mála í sjónvarpinu enda ekki á hverjum degi sem Akureyri fær sjónvarpsleik.

Einhverjir orðrómar hafa verið uppi um að Ólafur Stefánsson muni leika með Val í dag en hann átti félagaskipti í gær og er því löglegur með liði Vals. Hvort hann komi beint inn í leikmannahópinn og leiki í dag er spurning en vissulega óvæntar fregnir enda er lið Vals á toppi deildarinnar og er ógnarsterkt fyrir.

Bæði lið þurfa á sigri að halda, Akureyri vill að sjálfsögðu halda áfram að hala inn stigum eftir erfiða byrjun á meðan Valsarar vilja að sjálfsögðu halda sigurgöngu sinni áfram á toppnum. Ekki missa af þessum leik, áfram Akureyri!
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson