Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Akureyri þarf að fara í gegnum Stjörnuna til að komast áfram í bikarnum

1. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri fékk útileik gegn Stjörnunni í bikarnum

Í gær var dregið í 16 liða úrslit í Coca-Cola bikarnum og fékk Akureyri útileik gegn Stjörnunni. Stjarnan er með fullt hús stiga á toppi 1. deildarinnar og má því búast við hörkuleik gegn Garðbæingum. Stefnt er að leikir umferðarinnar fari fram dagana 29. og 30. nóvember.

Af þessum 8 viðureignum eru 3 milli úrvalsdeildarliða og því ljóst að sterkir kandídatar munu ekki komast áfram í næstu umferð en svona lítur 16-liða úrslitin út:

Fjölnir - Selfoss
Grótta - FH
ÍBV 2 - Valur
HK - ÍBV
Afturelding - Víkingur
Stjarnan - Akureyri
Þróttur Vogum - Fram
Haukar - ÍR
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson