Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Þriðja stelpan hjá Ingimundi

4. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Fjölgun hjá Ingimundi og Hönnu Steinu

Það er óhætt að segja að það hafi verið gild ástæða fyrir því að Ingimundur Ingimundarson var ekki staddur í Vodafonehöllinni á Hlíðarenda gegn Val á laugardaginn. Ingimundi og konu hans, Hönnu Steinu Arnarsdóttur fæddist nefnilega dóttir á föstudaginn.

Stelpan er hraust og glæsileg, var 14 merkur og 51 cm á lengd og heilsast þeim mæðgum vel.


Myndarstúlka komin í heiminn

Við óskum Ingimundi og Hönnu Steinu innilega til hamingu og velfarnaðar með stækkandi fjölskyldu.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson