 Liðin mættust í hörkuleik í Mosó fyrr í vetur, hvernig fer fyrir norðan?
| | 10. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarHeimaleikur gegn Aftureldingu á fimmtudaginn
Akureyri tekur á móti Aftureldingu í KA-Heimilinu á fimmtudaginn klukkan 18:30. Leikurinn er liður í 12. umferð Olís deildarinnar en Akureyri hefur reyndar aðeins leikið 10 leiki þar sem útileik gegn ÍBV var frestað fyrr í vetur.
Akureyri er með 6 stig í 9. sæti deildarinnar á meðan Afturelding er með 12 stig í 5. sætinu. Afturelding sem endaði í 2. sæti bæði í deildinni og á Íslandsmótinu í fyrra hefur verið í smá erfiðleikum með að halda stöðugleika það sem af er móti.
Á sama tíma hefur Akureyri verið að leika betur og betur eftir afar erfiða byrjun á tímabilinu, skemmst er að minnast hve stutt liðið var frá því að leggja topplið Vals að velli á Hlíðarenda í síðustu umferð. Heimir Örn Árnason skoraði mest 11 mörk í leik fyrir Akureyri og var það einmitt í heimaleik gegn Aftureldingu, hér má sjá öll mörkin úr leiknum sem fram fór þann 21. mars 2013 Strákarnir hafa nú unnið 4 af síðustu 6 leikjum sínum eftir að hafa tapað fyrstu 5 leikjum tímabilsins, það er því um að gera að mæta í KA-Heimilið og styðja strákana áfram til sigurs, með þessu áframhaldi mun liðið halda áfram að klífa töfluna, áfram Akureyri!
|