 Leikir liðanna í vetur hafa verið háspennuleikir
| | 11. mars 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarLeiknum gegn ÍBV frestað um viku - til 20. marsNú er búið að ákveða að fresta leik Akureyrar og ÍBV sem vera átti í KA-Heimilinu sunnudaginn 12. mars um viku. Það þykir útséð að ekki verði ferðaveður á sunnudaginn og þess í stað gert ráð fyrir að leikurinn fari fram sunnudaginn 20. mars klukkan 16:30.
Liðin hafa mæst tvisvar í vetur og í báðum leikjum var um sannkallaða háspennu að ræða þar sem báðum leikjum lauk með jafntefli! Liðin mættust hér á Akureyri í síðasta leik ársins 2015 þar sem allt ætlaði að ganga af göflunum í lokin en Eyjamenn jöfnuðu þá andartaki fyrir leikslok. Allt á suðupunkti undir lok leiks liðanna í desember Nú er svo sannarlega mikilvægt að okkar menn mæti einbeittir til leiks og berjist fyrir stigunum því það er stutt á milli liða bæði upp á við og niður á við í deildinni.
Eyjamenn eru í 3. sæti Olísdeildarinnar eftir jafntefli í gær við Gróttu á heimsvelli sínum, fjórum stigum á undan Akureyri sem er í 8. sætinu. Vestmannaeyingar endurheimtu stórskyttuna Agnar Smára Jónsson frá Danmörku núna í janúar en misstu hins vegar Hákon Daða Styrmisson til Hauka í staðinn. Báðir hafa látið til sín taka með sínum nýju liðum, Agnar Smári með 33 mörk í fimm leikjum og Hákon Daði með 20 mörk í jafnmörgum leikjum með Haukum.
En eins og maðurinn sagði þá er næsta víst að bæði lið ætla sér stigin í þessum leik og þar verður barist til þrautar fram á síðustu sekúndu leiksins. |