Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Birkir var öruggur á vítalínunni

13. mars 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Öruggur sigur Akureyri 1 á Stjörnunni

Ţrátt fyrir vandrćđi í samgöngum í gćr var 2. flokkur Stjörnunnar mćttur til leiks og klár í slaginn. Ekki skorti Stjörnumenn stuđningsmenn í stúkunni ţví nemendur úr Garđabć eru staddir á Akureyri og gista í KA heimilinu. Ţađ var ţví mikill fjöldi áhorfenda á leiknum, flestir á bandi Stjörnunnar og studdu sína menn dyggilega.
En ţrátt fyrir ađ vera nánast á útivelli tók Akureyrarliđiđ leikinn í sínar hendur strax í byrjun, Bernharđ lokađi markinu og Akureyri komst í 3:0. Munurinn hélst ţannig, tvö til ţrjú mörk lengst af fyrri hálfleiks en undir lok hálfleiksins juku heimamenn muninn sem varđ fimm mörk, 15:10 í hálfleik.

Akureyri herti tökin á leiknum í seinni hálfleik, munurinn varđ átta mörk og aldrei spurning hvort liđiđ fćri međ sigur af hólmi en leiknum lauk međ öruggum sex marka sigri 30:24.

Mörk Akureyrar: Birkir Guđlaugsson 8 (5 úr vítum), Patrekur Stefánsson 7, Arnţór Finnsson 4, Vignir Jóhannsson 4, Almar Bjarnason 2, Jóhann Einarsson 2, Kristján Garđarsson 2 og Heimir Pálsson 1.
Bernharđ Jónsson stóđ í markinu í fyrri hálfleik og Arnar Fylkisson ţeim seinni og vörđu báđir vel.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson