Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Gróttumenn búnir ađ vera sterkir í vetur

16. mars 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Útileikur gegn Gróttu á fimmtudaginn

Eftir ađ veđriđ setti strik í reikninginn um síđustu helgi má segja ađ ţađ sé ţétt prógram framundan hjá Akureyri nćstu dagana. Balliđ byrjar međ heldur betur mikilvćgum leik á Seltjarnarnesinu á fimmtudaginn. Akureyri sćkir ţá Gróttu heim en međ sigri í leiknum tryggir Akureyri sér áframhaldandi veru í deildinni og ţar međ sćti í úrslitakeppninni.

Liđin hafa mćst tvisvar í vetur og unniđ sitt hvorn útileikinn. Grótta fór illa međ Akureyri hér fyrir norđan en Akureyri vann aftur gríđarlega mikilvćgan baráttusigur ţegar liđin mćttust á Nesinu.

Gróttumenn eru baráttujaxlar og hafa gert ýmsum liđum skráveifu í vetur. Ţeir fóru í úrslitaleikinn í Coca Cola bikarnum en töpuđu ţar fyrir Val međ tveggja marka mun. Eftir bikarúrslitin hafa ţeir spilađ ţrjá leiki í Olís deildinni. Töpuđu óvćnt fyrir ÍR á heimavelli en voru síđan óheppnir ađ missa útileik gegn ÍBV niđur í jafntefli. Síđasta fimmtudag lék Grótta útileik gegn Haukum ţar sem ţeir áttu slakan fyrri hálfleik en bitu nokkuđ frá sér í ţeim seinni. Leiknum lauk međ átta marka sigri Hauka sem tryggđu sér ţar deildarmeistaratitilinn.

En ţađ er til mikils ađ vinna fyrir Akureyri í leiknum og afar dýrmćt stig í bođi. Viđ hvetjum alla sem mögulega geta til ađ mćta og styđja liđiđ til sigurs, áfram Akureyri!

Ţađ er svo stutt í nćstu leiki ţví á sunnudaginn verđur leikinn frestađur leikur gegn ÍBV og er hann tímasettur klukkan 16:30. Á miđvikudaginn mćta Mosfellingar norđur en sá leikur hefst klukkan 19:30 eins og allir leikir í nćstsíđustu umferđ Olís deildarinnar.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson