 Benni ætlar sér til Danmerkur!
| | 6. apríl 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarUndankeppnin hjá U-20 um helginaUm helgina mun U-20 landslið Íslands leika í undankeppni Evrópumótsins. Riðill Íslands verður leikinn í Póllandi, nánar tiltekið Gdansk, en þar keppa lið Íslands, Póllands, Ítalíu og Búlgaríu um tvö laus sæti í lokakeppninni. Lokakeppnin er svo haldin í sumar í Danmörku.
Eins og við tilkynntum fyrir nokkrum vikum síðar þá er markvörðurinn okkar hann Bernharð Anton Jónsson í lokahópnum og óskum við honum og liðsfélögum hans góðs gengis. Þjálfarar liðsins eru þeir Ólafur Stefánsson og Sigursteinn Arndal.
Leikir íslenska liðsins (íslenskar tímasetningar): Föstudagur 8. apríl kl. 16.00 | ÍSLAND - Pólland Laugardagur 9. apríl kl. 14.00 | ÍSLAND - Búlgaría Sunnudagur 10. apríl kl. 10.00 | ÍSLAND - Ítalía Bernharð á æfingu með U-20 ára liðinu í gær. Mynd: fimmeinn.is
|