Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Bernharð í landsliðstreyjunni góðu

10. apríl 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

U-20 tryggði sig inn á EM með glæsibrag

U-20 landslið Íslands var nú í morgun að leggja Ítali að velli í lokaleik sínum í undankeppni EM en keppnin fór fram í Póllandi. Íslenska liðið vann alla leiki sína og það örugglega og tryggði sér því sæti í lokakeppninni sem fer fram í Danmörku í sumar.

Fyrst lágu heimamenn í Pólska liðinu 26-31 þar sem íslenska liðið leiddi allan tímann. Því næst kaffærði liðið Búlgaríu 45-21 og að lokum vannst 45-20 sigur á Ítölum.

Bernharð Anton Jónsson markvörður okkar var í hópnum og spilaði vel eins og allt liðið sem sýndi og sannaði að það er til alls líklegt þegar til Danmörku verður komið í sumar. Til hamingju með EM sætið strákar!
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson