Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hörður Fannar skoraði á síðustu andartökum leiksins

19. apríl 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Þegar Akureyri lagði Haukana á lokasekúndunni

Oddaleikur Hauka og Akureyrar er í kvöld klukkan 19:30 á Ásvöllum og þykir okkur nú við hæfi að rifja upp eitt skemmtilegasta augnablikið í sögu Akureyrar. Akureyri tók á móti Haukum þann 8. desember 2011 og leiddu gestirnir 18-19 þegar komið var fram á lokamínútuna. Akureyrarliðið gafst ekki upp og skoraði Hörður Fannar Sigþórsson sigurmarkið á lokasekúndunni og allt varð tryllt í Höllinni!

Við minnum svo alla á að mæta á leikinn í kvöld ef þið eruð fyrir sunnan en ef þið komist ekki á leikinn verðum við með beina textalýsingu frá leiknum og HaukarTV hyggjast sýna leikinn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson