 Það er allt undir í leik kvöldsins!

| | 19. apríl 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Oddaleikur á ÁsvöllumÍ kvöld mætast lið Hauka og Akureyrar að Ásvöllum klukkan 19:30 í hreinum úrslitaleik um sæti í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Fyrirfram var nú búist við öruggum sigri Hauka í einvíginu en magnaður sigur Akureyrar í öðrum leik liðanna sá til þess að það er allt undir í kvöld.
Pressan er öll á Íslandsmeisturum Hauka og verður áhugavert að sjá hvernig þeir takast á við það. Akureyrarliðið hefur hinsvegar allt að vinna í kvöld og vonandi að menn nýti það til þess að njóta leiksins og vonandi ná óvæntum úrslitum.
Í gær rifjuðum við upp sigur Akureyrar á Ásvöllum frá árinu 2007 en nú kíkjum við á töluvert nýrri leik en Akureyri lagði Haukana á Ásvöllum í deildarkeppninni á síðustu leiktíð 20-25 og má sjá stutt myndband frá þeim leik hér:Við hvetjum ykkur öll sem eruð fyrir sunnan til að mæta á Ásvelli og styðja Akureyrarliðið til sigurs, strákarnir eru einbeittir í að gefa allt í leikinn og slá út Haukana, áfram Akureyri!
Við munum standa vaktina hér á heimasíðunni og verðum með beina textalýsingu eins og vant er.
Þá verður HaukarTV væntanlega með beina útsendingu frá leiknum og hægt að fylgjast með útsendingu þeirra með því að smella hér. |