Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Jonni hefur gert frábæra hluti í Kristiansund í Noregi



27. maí 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Solskjær: Jónatan er besti handboltaþjálfari í heimi

Jónatan Þór Magnússon fyrrum leikmaður Akureyrar og KA hyggur á heimför eftir góð ár í Noregi sem þjálfari í Kristiansund. Enginn annar en Manchester United goðsögnin Ole Gunnar Solskjær talaði vægast sagt vel um okkar mann en Jonni þjálfaði dóttur Solskjær í handbolta.

„Sjáið bara alla Íslendingana sem koma til Noregs. Þeir eru aldrei með neikvætt viðhorf,” sagði Solskjær í norsku blaðaviðtali.

„Í KHK nýtur dóttir mín leiðsagnar þjálfara, Jónatans Magnússonar, sem mér finnst besti handboltaþjálfari í heimi vegna þess hvernig hann lifir fyrir handboltann. Hann hefur alltaf tíma fyrir hverja stúlku og örugglega hvern dreng líka þar sem hann þjálfar öll liðin í klúbbnum. Nú er hann því miður á leiðinni til Íslands. Við þurfum fleiri svona týpur í Noregi,” sagði Solkjær ennfremur.

Við endum þetta svo á skemmtilegu jöfnunarmarki Jonna fyrir Akureyri í oddaleik gegn Val í úrslitakeppninni 2010:

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson