Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Oddur er lunkinn í því að koma knettinum í netið



5. júní 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Oddur markakóngur í þýsku B-deildinni

Oddur Gretarsson fyrrum leikmaður Akureyrar varð í gær markakóngur þýsku B-deildarinnar þegar hann skoraði 7 mörk fyrir TV Emsdetten í lokaumferðinni. Oddur skoraði alls 261 mark í deildinni og var þremur mörkum fyrir ofan Christian Schä­fer hjá Bietig­heim.

Við óskum Oddi að sjálfsögðu til hamingju með nýju nafnbótina en til gamans má geta að Oddur er næst markahæsti leikmaðurinn í sögu Akureyrar með 620 mörk í alls 124 leikjum. Mest skoraði hann 197 mörk á einu tímabili en það gerði hann 2010-2011 þegar Akureyri varð Deildarmeistari.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson