Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Til hamingju Andri Snær og Kristján Orri



17. nóvember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Andri Snær og Kristján Orri í úrvalsliði 11. umferðar

Þá hafa sérfræðingar vefsíðunnar fimmeinn.is valið úrvalslið 11. umferðar Olísdeildar karla. Að þessu sinni á Akureyri Handboltafélag tvo fulltrúa í liðinu eftir góðan sigur á Gróttu á sunnudaginn. Það eru hornamennirnir Andri Snær Stefánsson í vinstra horninu og Kristján Orri Jóhannsson í því hægra. Þeir félagar léku stórt hlutverk í lokakafla leiksins þar sem Akureyrarliðið innbyrti stigin dýrmætu.

Við óskum þeim og öðrum sem voru valdir í liðið til hamingju með tilnefningarnar en úrvalslið 11. umferðarinnar hjá fimmeinn.is er sem hér segir:

Mark: Sveinbjörn Pétursson, Stjörnunni
Vinstra horn: Andri Snær Stefánsson, Akureyri
Vinstri skytta: Josip Juric Gric, Valur
Miðja: Janus Daði Smárason, Haukar
Lína: Jón Þorbjörn Jóhannsson, Haukar
Hægri skytta: Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV
Hægra horn: Kristján Orri Jóhannsson Akureyri.

Það er því við hæfi að rifja einu sinni enn upp lokakafla Gróttuleiksins.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson