 Aron Tjörvi var drjúgur í markaskoruninni
| | 24. janúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifarTap hjá Ungmennaliðinu gegn ÞróttiÞað var fáliðaður hópur Ungmennaliðs Akureyrar sem sótti Þróttara heim á laugardaginn í 1. deild karla. Að þessu sinni var ekki fyrir hendi að stilla upp sterkasta liðinu af ýmsum ástæðum. Meistaraflokkurinn var til dæmis bundinn í tveim æfingaleikjum og því spiluðu engir þeirra með að þessu sinni. Auk þess sem meiðsli og önnur forföll hindruðu aðra til þátttöku í leiknum.
Strákarnir áttu erfiðan fyrri hálfleik og ekki bætti úr skák að Vignir Jóhannsson fékk að líta beint rautt spjald um miðjan fyrri hálfleikinn. Þróttur var tíu mörkum yfir í hálfleik, 17-7 og úrslitin eiginlega ráðin.
En strákarnir sýndu frábæran karakter í seinni hálfleiknum og unnu hann raunar með fjórum mörkum sem dugði þó ekki til þannig að niðurstaðan var sex marka tap, 32-26.
Mörk Akureyrar: Heimir Pálsson 9, Aron Tjörvi Gunnlaugsson 6, Jón Heiðar Sigurðsson 6, Jóhann Einarsson 2, Kristján Helgi Garðarsson 2 og Finnur Salvar Geirsson 1 mark. Ásgeir Kristjánsson stóð vaktina í markinu í fyrri hálfleik en Páll Snævar Jónsson stóð vaktina með mikilli prýði í seinni hálfleiknum.
Næstu þrír leikir Ungmennaliðsins eru heimaleikir, fyrst gegn HK þann 11. febrúar. Raunar er það svo að liðið á eftir sjö leiki og þar af eru sex heimaleikir. |