Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Friðrik Svavarsson tók á því um helgina

24. janúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar

Góð æfingaferð hjá Akureyri um helgina

Meistaraflokkur Akureyrar var á höfuðborgarsvæðinu um helgina og lék þar tvo æfingaleiki. Á föstudagskvöldið var leikur gegn ÍR í Austurbergi. Akureyri leiddi allan tímann og fór með sigur af hólmi í leiknum.

Snemma á laugardaginn lá leiðin í Hafnarfjörðinn þar sem fór fram leikur gegn Íslandsmeisturum Hauka. Leikurinn var sveiflukenndur, Haukar náðu fimm marka forskoti í fyrri hálfleik en Akureyri kom til baka og komst þrem mörkum yfir í seinni hálfleiknum. Að lokum varð þó jafntefli niðurstaðan, 19-19.

Vissulega voru þetta æfingaleikir en Sverre Jakobsson var afar ánægður með ferðina og segir liðið hafa fengið helling út úr leikjunum sem vonandi skilar sér þegar Olís deildin fer af stað á ný. Fyrsti leikur Akureyrar verður fimmtudaginn 2. febrúar þegar Valsmenn koma í heimsókn og nokkrum dögum síðar eða sunnudaginn 5. febrúar verður farið í útileik gegn FH.
Þar með lýkur öðrum hluta Olís deildarinnar og í kjölfarið verður hægt að birta leikjaniðurröðun síðasta þriðjungs deildarinnar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson