 Hvaða stöðu skyldi Daði Jónsson spila í leiknum?
| | 17. febrúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar1. deild: Akureyri U - Mílan kl. 13:30 á laugardagÁ morgun, laugardag er komið að heimaleik Ungmennaliðs Akureyrar gegn Mílunni. Leikurinn hefst klukkan 13:30 í Íþróttahöllinni. Nokkuð er síðan að sá leiktími var settur á en einhverra hluta vegna hefur alltaf staðið rangur leiktími inni á vef HSÍ. Það er því áríðandi að láta þau boð út ganga til stuðningsmanna að flautað verður til leiks klukkan hálf tvö (13:30) eins og áður segir.
Akureyrarliðið situr í níunda sæti 1. deildar karla með 12 stig á meðan Mílan situr í tólfta sæti með 3 stig. Akureyri vann útileikinn sem var spilaður á Selfossi 28-29 í hörkuleik þannig að við eigum von á spennandi leik á laugardaginn.
Mílan nýtir vel ferðina hingað norður því að í kvöld, föstudagskvöld leika þeir deildarleik sinn við Hamrana. Sá leikur er í KA heimilinu en á óvenjulegum tíma, klukkan 21:45.
Sjáumst í Höllinni klukkan 13:30 á laugardaginn! Brosmildir Ungmennaliðskappar eftir góðan sigur
|