 Ásgeir og Páll vörðu vel í dag

| | 18. febrúar 2017 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri U með sigur á MílunniUngmennalið Akureyrar tók á móti Mílunni í leik dagsins í 1. deild karla. Leikurinn fór rólega af stað, Akureyri komst í 2-0 en Mílan jafnaði í 2-2. Ásgeir Kristjánsson fór hreinlega hamförum í Akureyrarmarkinu, varði fyrstu sex skotin sem hann fékk á sig, þar á meðal eitt vítakast. Sóknarmenn Akureyrar hefðu átt að geta nýtt sér þessa markvörslu betur en eftir að Mílan jafnaði bættu sóknarmenn Akureyrar heldur betur í og breyttu stöðunni í 11-3 og virtust Mílumenn ekki eiga möguleika í leiknum. Þeir gáfust þó ekki upp og náðu að minnka muninn í fjögur mörk 12-8 fyrir leikhlé. Af þessum átta mörkum Mílunnar skoraði Atli Kristinsson fimm og óhætt að segja að hann beri uppi lið Mílunnar. Ásgeir Kristjánsson hélt áfram stórleik sínum í Akureyrarmarkinu og varði alls 14 skot í fyrri hálfleik.
Nánast nýtt lið kom inná hjá Akureyri U í seinni hálfleik. Mílumenn leggja ekki beinlínis upp úr hröðum leik en seiglast ótrúlega og kunna sitt hvað fyrir sér í varnarleiknum. Einhvernvegin má segja að þeir hafi náð Akureyrarliðinu niður á sinn hægagang í sókninni sem varð fremur bitlaus.
Mílan náði að minka forskot Akureyrar niður í tvö mörk, 15-13 um miðjan seinni hálfleikinn. Í kjölfarið tók Akureyri leikhlé og Andri Snær þjálfari messaði yfir sínum mönnum og óhætt að segja að ekki hafi veitt af.
En það bar jú árangur, fjögur mörk í röð komu Akureyri aftur í þægilega stöðu, 19-13. Mílumenn náðu þó smáskorpu í lokin og lauk leiknum með þriggja marka sigri Akureyri U, 22-19.
Akureyrarliðið hefur oft spilað betur en í dag en góð tvö stig í húsi og markaskorunin dreifðist mikið. Strákarnir hafa trúlega verið með hugann við næsta verkefni 2. flokks sem er undanúrslitaleikur gegn Val í bikarkeppni 2. flokks á þriðjudaginn. Menn hugsanlega eitthvað að spara sig í dag, það var því ekki gott að Jóhann Einarsson þurfti að yfirgefa völlinn með hnémeiðsli. Vonandi verður hann þó orðinn leikfær á þriðjudaginn.
Mörk Akureyri U: Heimir Pálsson 4 (2 úr vítum), Arnþór Gylfi Finnsson 3, Birkir Guðlaugsson 3 (2 úr vítum), Vignir Jóhannsson 3, Garðar Már Jónsson 2, Jóhann Einarsson 2, Kristján Helgi Garðarsson 2, Aron Tjörvi Gunnlaugsson 1, Hafþór Már Vignisson 1 og Sigþór Gunnar Jónsson 1 mark. Ásgeir Kristjánsson stóð í markinu í fyrri hálfleik og varði 14 skot, þar af 1 vítakast. Páll Snævar Jónsson sá um markvörsluna í seinni hálfleik og átti sömuleiðis fínan leik, 9 varin skot og þar af 3 vítaköst. Þeir félagar virtust algjörlega með vítaskyttur Mílunnar sem fengu alls 9 vítaköst sem skiluðu þeim þó aðeins þrem mörkum.
Mörk Mílunnar: Atli Kristinsson 10, Einar Sindri Ólafsson 2, Hermann Guðmundsson 2, Hlynur Steinn Bogason 2, Eyþór Jónsson 1, Ómar Vignir Helgason 1 og Trausti Elvar Magnússon 1 mark. Markverðir Mílunnar stóðu fyrir sínu, Hermann Guðmundsson varði sex skot í fyrri hálfleiknum og Bogi Pétur Thorarensen sömuleiðis sex í þeim seinni.
Í heildina skrýtinn handboltaleikur sem Mílumenn náðu að stjórna með sínum hæga og rólyndislega leik en þeir eiga hrós skilið fyrir léttan og skemmtilegan húmor fyrir leiknum.
|