Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það er kominn tími á að ljúka aðalfundinum

11. maí 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar

Framhaldsaðalfundur Akureyri Handboltafélags

Framhaldsaðalfundur Akureyri Handboltafélags verður haldinn fimmtudaginn 18. maí og hefst klukkan 20:00. Fundurinn verður haldinn í félagsaðstöðu liðsins í Íþróttahöllinni. Þann 24. apríl var haldinn boðaður aðalfundur þar sem flutt var skýrsla stjórnar og reikningar félagsins kynntir. Óskað var eftir að seinni dagskrárliðum yrði frestað þar til kominn væri botn í viðræður eigenda félagsins (KA og Þór).

Nú er komið að því að ljúka fundinum. Allir áhugamenn um handboltann á Akureyri eru hvattir til að mæta.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson