Heiðmar í leik með Hannover
| | 20. september 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifar"Okkar menn í útlandinu" - Heiðmar gerði 8 mörkHeiðmar Felixson, fyrrverandi leikmaður Þórs og KA, skoraði 8 mörk og var í aðalhlutverki þegar lið hans, TSV Hannover-Burgdorf, sigraði MTV Herzhorn 36:27 á útivelli í 2. umferð þýsku bikarkeppninnar í gærkvöldi. Rétt að benda á glæsilega hemasíðu Heiðmars, slóðin er: www.heidmar.de
Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaðurinn frábæri sem gerði garðinn frægan með KA, skoraði 5 mörk þegar Gummersbach sigraði 2. deilarlið TSB Heilbronn/Hockenheim 37:26 á útivelli í 2. umferð bikarkeppninnar. Sverre Jakobsson skoraði ekki en stóð vaktina í vörninni með prýði að vandal.
Tusem Essen lagði á sama tíma lið EHV Aue í sömu keppni, 33:28, á útivelli. Halldór Jóhann Sigfússon, fyrrverandi leikmaður KA, var ekki í leikmannahópi Essen-liðsins, en hins vegar lék lettneski markvörðurinn Mareks Skabeikis með EHV, en hann lék sem kunnugt er með Þór í einn vetur fyrir skömmu við góðan orðstír.
Þá sigruðu Andrius Stelmokas og félagar í Füchse Berlin lið Augustdorf á útivelli, 39:21. Stelmokas gerði 7 mörk fyrir Berlínarliðið.
Og síðast, en ekki síst, lék Hreiðar Levý, fyrrverandi markvörður KA og Akureyrar, sinn fyrsta leik í sænsku deildinni í gær með Sävehof sem vann góðan útisigur á Lindesberg 31-38. Samkvæmt Gautaborgarpóstinum átti Hreiðar fínan leik. Göteborgs-Posten segir m.a. "......Sävehofs halvtidsledning krympte från sju till två bollar, men nye målvakten Hreidar Gudmundson gjorde några viktiga räddningar…" |